2025

Stóllinn sem lifði af – Endurgerð hönnunar Snorra Haukssonar

Ég fékk tækifæri til að vinna með Auði Gná að verkefni fyrir Hönnunarmars 2025. Í samstarfinu unnum við að endurgerð borðstofustóls eftir Snorra Hauksson innanhússarkitekt og hannaði ég mynstur sem var útfært bæði í áklæði stólsins og handgerðum ullarteppum. Verkefnið var skemmtilegur samruni íslenskrar hönnunarsögu og minnar eigin myndsköpunar, þar sem kallarnir mínir fengu að birtast í nýju samhengi.

Insula stóð að baki viðburði á Hönnunarmars 2025. Nafn viðburðarins vísar í einstakan borðstofustól sem einungis eitt eintak hefur varðveist af, svo vitað sé, en stóllinn var hannaður í kringum 1970 af Snorra Haukssyni innanhússarkitekt.

Vitað er til þess að Snorri hafi hannað nokkur húsgögn og er stóllinn, sem var sýndur, eitt þeirra. Stóll Snorra fór í framleiðslu hér á landi í skamman tíma og finna má myndir í eldri tímaritum þar sem hann er kynntur ásamt borðstofuborði sem Snorri hannaði, en virðist ekki hafa varðveist.

Hugmyndin fæddist að klæða stólinn samtímahönnun fyrir kynningu á Hönnunarmars. Sóley Lee Tómasdóttir er grafískur hönnuður sem býr til myndheima sem einkennast af sama einfaldleika í sköpun og segja má að hafi einkennt hönnun Snorra, þótt af ólíkum toga sé.

Sóley býr til lífrænar verur og setur þær fram á áhugaverðan hátt. Verurnar prýða stól Snorra á sýningunni og mætir Snorri þannig augum Sóleyjar í gegnum þennan einstaka stól, sem nú gengur í endurnýjun lífdaga og fær vonandi það pláss í sögu íslenskrar húsgagnahönnunar sem honum sæmir.

For DesignMarch 2025, I collaborated with Auður Gná on a project bringing together Icelandic design history and contemporary craft.

At the centre of the project was a dining chair designed around 1970 by Icelandic interior architect Snorri Hauksson, with only one known example surviving today. Together, we gave the chair a new life through a contemporary reinterpretation.

I created the textile design for the chair alongside a series of hand-tufted wool rugs, bringing forms and characters from my own visual world into the project. The result became a meeting point between Snorri’s original design and my own work, connecting two different periods of Icelandic design through material, colour and form.